top of page
Spelt bollur með rifnum AB osti og ólífum
Innihald:
5 dl spelt
3 tsk vínsteinslyftiduft
½-1 tsk sjávarsalt
1,5-2 dl ab mjólk
1,5-2 dl sjóðandi heitt vatn
1,5 dl rifinn AB ostur
0,5 dl saxaðar ólífur
Aðferð:
Spelt, vínsteinslyftidufti og sjávarsalti blandað saman. Bætið í söxuðum ólífum og
rifnum AB osti. Hellið ab mjólk og heitu vatni saman við hrærið saman en gætið að því að hræra ekki of mikið. Lagið litlar bollur og bakið við 190° bökunartími fer eftir stærð brauðanna.
Höfundur: Árni Þór Arnórsson
bottom of page