top of page
2222.jpg

Rjómasveppasúpa með hráskinku og rifnum villisveppaosti

Fyrir 6

Innihald

100 gr smjör

100 gr hveiti

5 dl  vatn

5 dl nýmjólk

2 stk súputeningar

1 stk sveppateningur

250 gr sveppir

1 msk smjör

5 dl rjómi

Salt og nýmulinn svartur pipar

6 cl sherry eða púrtvín (má sleppa)

5 sneiðar hráskinka eða hrátt hangikjör

6 msk rifinn villisveppaostur

 

Aðferð

Bræðið smjörið og bætið í hveiti hrærið vel saman. Setjið saman við vatn og mjólk. sjóðið við vægan hita í nokkkrar mínútur. Bætið í súputeningum og sveppateningum. Saxið sveppina og steikið í smjörinu, kryddið með salti og pipar. Hellið rjómanum yfir sveppina og látið sjóða upp. Bætið svepparjómanum í súpugrunninn og bragðbætið með sherry eða púrtvíni.

Skerið hráskinkuna í bita og setjið í miðju disksins ásamt 1 msk af rifnum villisveppaosti. Hellið súpunni í diskinn og berið fram.

 

Höfundur: Árni Þór Arnórsson

www.gottimatinn.is

bottom of page