top of page
Speltsnúðar með skinku og rifnum piparosti
c.a. 25 stk
Innihald:
6 dl spelt mjöl
3 dl hveiti
1 tsk sykur
4 msk olía
4 tsk þurrger
3 dl volgt vatn
1 tsk salt
Fyllingin:
Skinku smyrja
Skinku kurl
Rifinn piparostur
Rifinn pizzaostur
Aðferð:
Hnoðið deigið og látið hefast.
Rúllið út deigið og skerið í ferninga setjið skynkusmyrju, skinkukurl, pizzaost og rifinn piparost á ferningana og rúllið upp. Látið hefast í 25 mín. Bakið við 200° í 8-12 mínútur
Höfundur: Árni Þór Arnórsson
bottom of page