top of page
Ostarúllubrauð með pepperoni
1 stk rúllutertubrauð
1 dl rjómi
200 gr rjómaostur
200 gr mexikóostur
100 gr gratínostur
1 stk egg
100 gr pepperoni
50 gr sólþurrkaðir tómatar ( Saxaðir )
½ dl Sýrður rjómi
100 gr gratínostur
Aðferð.
Hrærið saman rjóma og rjómaost Bætið saman við eggi, mexikóost, gratínost, pepperoni og sólþurrkuðum tómötum. Smyrjið á brauðið og rúllið upp. Smyrjið brauðið með sýrðarjómanum og stráið yfir gratínostinum. Bakið við 180°C í 20-25 mínútur.
Höfundur: Árni Þór Arnórsson
bottom of page