top of page
Lamb Tandoori
Fyrir 4-6 persónur
Innihald:
1-1,2 kg beinlaust lambakjöt (einnig hægt að nota kjúkling)
250 g hrein jógúrt
5 msk. Tandoori masala karry paste
1 msk engifer fínt saxaður
1 msk hvítlaukur fínt saxaður
Salt (má sleppa)
Olía til steikingar
Aðferð:
Hrærið saman jógúrti, engifer, hvítlauk, tandoori past og smakkaðu til með salti. Taktu 1/3 af marineringunni frá. Veltið kjötinu upp úr marineringunni. Láttu standa í kæli í amk 2 klst. eða yfir nótt. Steiktu kjötið í olíu á pönnu eða bakaðu í ofni. Berðu restina af marineringunni fram sem sósu. Berðu fram með fersku grænmeti og salati.
Höfundur Árni Þór Arnórsson
bottom of page