top of page
laxapate.jpg

Bleikjupaté með rjómaosti

 

650 gr bleikju eða laxaflök

100 gr reykt bleykja eða lax

125 gr rjómaostur með kryddblöndu

3 eggjahvítur

1 tesk salt

1/4 tesk pipar

1 msk sítrónusafi

3 dl kaldur rjómi

 

Setjið fiskinn í matvinnsluvél og maukið, bætið í salti pipar og rjómaostinum. Bætið í eggjahvítum einni í einu og maukið á milli. Þynnið með rjómanum og að lokum bætið í sítrónusafa. Smyrjið formkökuform að innan og hyljið botninn með bökunarpappír. 

Setjið farsið í formið og lokið með álpappír,  bakið í vatnsbaði í ofni við

150°C í ca 45 mínútur.

 

Berið fram með salati og sýrðum rjóma

 

Höfundur Árni Þór Arnórsson

www.gottimatinn.is

bottom of page