top of page
grafid_lamb.jpg

Grafið lambafillet með  Bláberjajógúrtsósu

 

Innihald:

1 kg lambafillet

3 msk Bezt á lambið

1 msk maldon salt

½ tsk Sykur

 

Aðferð:

Hreinsið alla fitu af lambafileinu. Hrærið saman Bezt á lambið, maldonsalti og sykri.  Kryddið undir kjötið og leggið það á stráið vel af grafblöndunni. Látið standa í minnst 12 tíma í kæliskáp. Gott er að grafa ríflega af kjöti, því það er hægt að frysta lambið og grípa í það á góðum stundum þegar gesti ber að garði.

 

Bláberjajógúrt sósa

 

Innihald:

100 g  grísk jógúrt

75 gr bláberjasulta

1 tsk hlynsíróp

 

Aðferð:

Hrærið öllu vel saman best væri ef það væri til alvöru heimalöguð bláberjasulta

 

Höfundur Árni Þór Arnórsson

WWW.gottimatinn.is

bottom of page