top of page

Grillaðar lambasneiðar á grískan máta með fetaosti og smátómötum

Fyrir 4-6

 

Innihald:

1400-1600 gr lambasneiðar með beini

1 msk oregano

2 krukkur Dalafeta með tómötum og ólífum

2 öskjur smái cherrytómatar skornir í helminga

Salt og nýmulinn svartur pipar

 

 

Aðferð:

Takið olíunna af 1 krukku af fetaosti og blandi með oregano setjið lambasneiðarnar í poka og blandið olíunni vel saman við kjötið. Gott að láta marinerast í 1-2 tíma við stofuhita. Blandið saman fetaostinum og  cherrytómötunum. Kryddið með salti og nýmuldum svörtumpipar.

Grillið lambasneiðarnar setjið á fat og hellið tómötunum og fetaostunum yfir berið fram með

tzatziki sósu og góðu salati með ólífum.

 

Höfundur Árni Þór Arnórsson

WWW.gottimatinn.is

bottom of page