top of page
Lambakjöt í rjómaosti og kotasælu
Fyrir 6
1 kg lambakjöt best að nota lundir eða fituhreinsað fillet
1 msk rosmaryn
Salt og nýmulinn svartur pipar
250 gr sveppir
100 gr kúrbítur
100 gr rauðlaukur
100 gr sólþurrkaðir tómatar (saxaðir)
400 gr rjómaostur
2 dósir kotasæla með hvítlauk
1 glas fetaostur að eigin vali
Aðferð:
Brúnið kjötið á pönnu og kryddið með rosmaryn, salti og svörtum pipar. Setjið í eldfastmót skerið grænmetið í bita og steikið á pönnunni. Hellið yfir kjötið. Stráið sólþurrkuðum tómötum yfir. Hrærið saman kotasæluna og rjómaostinn og smyrjið yfir kjötið og grænmetið.
Myljið fetaostinn yfir og bakið í ofni við 170° í c.a. 20 mín
Berið fram með fersku salati og góðu brauði
Höfundur Árni Þór Arnórsson
bottom of page