top of page
Sumarlegar smápizzur
Fínt í smárétti c.a. 35-40 stk
Pizzadeig:
3 dl spelt mjöl
1,5 dl hveiti
½ tsk sykur
2msk olía
2 tsk þurrger
1,5 dl volgt vatn
½ tsk salt
Aðferð:
Hnoðið deigið og látið hefast.
Á toppinn
2 dl Salsasósa
100 gr Rifinn Mexikóostur
1 askja Smátómatar
2 pokar Mozzarellakúlur litlar
Fletjið deigið út og skerið út litla hringi. Smyrjið með salsasósu og stráið yfir mexikóosti skerið smátómata og mozzarellakúlur til helminga og setjið einn helming af hvoru á topp pizzunar. Bakið við 200° í 5-7 mín
Höfundur Árni Þór Arnórsson
bottom of page