Grænmetis Lasagne með 4jórum ostum og brauðbollum
Fyrir 6 pers
Sósa:
1 msk olífuolía
1 stk laukur c.a. 100 gr saxaður
1-2 hvítlauksrif söxuð
4 msk tómatpúrre
1 dós niðursoðnir tómatar
1 tsk oregano
1 tsk rosmaryn
3 dl vatn
Grænmetið:
200 gr sveppir í bitum
200 gr blómkál í bitum
200 gr spergilkál í bitum
200 gr kúrbítur ( Zuccini)
200 gr niðursoðnar kjúklingabaunir
1 pakki græn lasagneblöð
500 gr kotasæla
125 gr gráðostur
1 poki Rifinn gratínostur
2 pokar Mozzarellla litlar kúlur skornar í 2 hluta
1 askja konfekttómatar c.a. 250 gr
Aðferð:
Byrjið á að laga sósuna. Svitið lauk og hvítlauk saman og bætið í tómatpurré ásamt oregano og rosmaryn. Bætið í niðursoðnum tómötum og vatni látið sjóða við vægan hita í 10 – 15 mín.
Steikið grænmetið á pönnu í olíu og blandið út í sósuna ásamt kjúklingabaunum. Látið sjóða í 2-3 mínútur.
Svo er öllu raðað saman. Kotasæla, rifinn gratínostur, lasagneplötur, grænmetisgums, gráðostur, lasagneplötur, kotasæla, rifnn gratínostur, grænmetisgums, lasagneplötur, kotasæla, gatínostur grænmetisgums og að lokum setjið konfekttómata og mozzarella á toppinn bakið við 180° í 30 – 40 mín
Brauðbollur
2 1/2 bolli spelt
1 bolli heilhveiti
5 tsk lyftiduft
1 tsk salt
2 1/2 dl hörfræ
3 dl sólblómafræ
2 dl graskerafræ
2 dl rifinn ab-ostur
1/2 ltr AB mjólk
1 dós lítil kotasæla
1 msk hlynsíróp
Aðferð:
Forhitið ofninn í 180°
Blandið öllu saman og mótið litlar bollur setjið í heitan ofn og bakið í 15-20 mín eftir stærð