top of page
Ostakaka með súkkulaðitoppi
Botn:
250 gr makkarónur muldar
125 gr brætt smjör.
Fylling:
400g rjómaostur
220 gr flórsykur
½ ltr. rjómi
Aðferð:
Blandið saman muldum makkarónum og bræddu smjöri. Setjið í botninn á eldföstumóti. Kælið
Hrærið rjómaostinn og flórsykurinn saman. Þeytið rjómann og blandið varlega saman við rjómaostablöndunina. Setjið ofan á makkarónukökurnar og kælið aftur.
Súkkulaðitoppur:
200 g suðusúkkulaði
1 dós sýrður rjómi 18 %
Aðferð;
Bræðið suðusúkkulaði og blandið saman við sýrða rjómann.
Smurt yfir kökuna
Dugar í eitt stórt eldfastform eða 2 smærri
Ostakökuna má frysta
Höfundur Árni Þór Arnórsson
bottom of page