top of page
Súkkulaði jógúrt ávaxtaídýfa (gott í saumó)
100 gr súkkulaði
½ dl rjómi
2 dl hreint jógúrt
1 dl vanilluskyr
Aðferð:
Bræðið saman súkkulaði og rjóma í vatnsbaði eða örbylgju hrærið saman með sleikju hrærið út ú skyri og jógúrti og kælið. Skerið ávexti í bita og berið fram með tannstönglum. Dýfið í súkkulaðið.
Höfundur Árni Þór Arnórsson
bottom of page