top of page
Haust sveppabaka
Fyrir 4
1 pakki wewalka bökudeig
300 gr blandaðir sveppir
1 stk rauðlaukur
200 gr gratínostur
3 egg
2 dl matreiðslurjómi
Aðferð:
Finnið til 4 form c.a. 12x12 cm og c.a. 3-5 cm djúp. Skerið deigið í 4 hluta og þrýstið í formin.
Steikið sveppina og rauðlaukinn. Kryddið með salti og pipar. Blandið saman sveppum, rauðlauk, matreiðslurjóma, eggjum og rifnum osti. Hellið blöndunni í skálarnar með deiginu. Bakið við 165°C í c.a. 30 mín. Berið fram með góðu nýbökuðu brauði og blönduðu salati.
Höfundur Árni Þór Arnórsson
bottom of page