top of page
Sætkartöflugratín
Fyrir 4-6
Innihald:
1 kg sætar kartöflur
1 stk meðalstór laukur
100 gr bacon
4 dl rjómi
200 gr piparostur
200 gr gratínostur
Salt
Aðferð:
Skrælið og skerið sætarkartöflur í teninga og saxið laukinn setjið í eldfast mót. Steikið bacon á pönnu og hellið rjóma yfir bætið í piparosti blandið vel saman hellið rjómablöndunni yfir kartöflurnar og stráið loks gratínosti yfir.
Bakið við 175° í 30 – 40 mín
Höfundur: Árni Þór Arnórsson
bottom of page